Gyrðir hlaut Zinklar-verðlaunin

Gyrðir Elíasson hlaut Zinklar-verðlaunin 2026, heiðursverðlaun að upphæð 100.000 danskar krónur, sem veitt eru dönskum eða erlendum smásagnahöfundi. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 2013, en þá hlaut þau hinn kunni danski höfundur Klaus Rifbjerg. Síðan hafa þau verið veitt 10 sinnum. Meðal fyrri verðlaunahafa eru Julian Barnes, Lydia Davies, Pia Juul, Judith Herman, Georgi Gospodinov og Liliana Colanzi.

Við afhendingu verðlaunanna í Kaupmannahöfn 4. júní var sagt frá dönskum þýðingum á verkum Gyrðis og þýðandinn Erik Skyum-Nielsen, sem þýtt hefur 15 bækur eftir hann, ræddi við höfundinn um smásögur hans og smáprósa.

Zinklar-verðllaunin voru stofnuð af danska rithöfundinum Finn Zinklar (1923–2010), sjá: https://danskforfatterforening.dk/zinklar-prisen/

Í tilefni verðlaunanna kom fyrsta smásagnasafn Gyrðis, BRÉFBÁTARIGNINGIN, út að nýju á dönsku hjá bókaforlaginu Jensen & Dalgaard, en það var fyrst gefið út í Danmörku 1991.

Lokabindið í Sjöleiknum eftir Jon Fosse

NÝTT NAFN er þriðja og síðasta bindið í stórvirki norska Nóbelshöfundarins Jons Fosse, hinum svonefnda Sjöleik

Sjöleikurinn er seiðmagnað verk þar sem lífsbarátta og hugsjónir mætast. Undir sléttu yfirborði ólga heitar tilfinningar og glíma við drykkjuskap tekur sinn toll. Í samspili gleði og sorgar er samt óbilandi trúin á náð Guðs alltumlykjandi.

Hjalti Rögnvaldsson íslenskaði

Nýtt nafn er tíunda bókin eftir Jon Fosse sem DIMMA gefur út.

Þrjár nýjar bækur í Ritsafn Gyrðis

Þrjár nýjar útgáfur í sívaxandi Ritsafn Gyrðis Elíassonar.

LJÓÐASAFN IV (2005-2012) sem geymir bækurnar Upplitað myrkur (2005), Nokkur almenn orð um kulnun sólar (2009) og Hér vex enginn sítrónuviður (2012).

Margradda og magnað verk! Vel á annað hundrað smáprósar, þar sem birtist fjöldi persóna og alls kyns óvænt atvik eiga sér stað. Ásamt systurbókinni, Pensilskrift, sem kom samtímis út haustið 2022, hlaut bókin afar góðar viðtökur og seldist fljótlega upp.

Tímamótaverk með hátt í 200 smáprósum sem rúma ótal persónur, þankabrot og atburði með fjölþættum spunaþráðum. Upphaflega gefin út ásamt systurbókinni, Þöglu myndunum, haustið 2022, hlaut frábærar viðtökur og seldist fljótlega upp.

ÓTÍÐ Í VÍTI eftir Gyrði Elíasson

Einstök og allt öðruvísi bók eftir Gyrði Elíasson er komin út! Í henni deilir hann með lesendum erfiðri lífsreynslu og dregur ekkert undan. Átakanleg og einlæg frásögn.

„Lesendur Gyrðis Elíassonar hafa alltaf haft grun um annan heim á bak við orð hans, jafnvel þegar þau sýnast tær og ljós og mynda fullkomlega eðlilega frásögn. Við skynjum, frekar en heyrum, einhverja undirtóna eða yfirtóna, eitthvað handan þess sem textinn sýnir okkur, stundum er það hátíðin að baki daganna, eins og góður rithöfundur orðaði það, stundum bíður dauðinn með bikar sinn fullan af myrkri eins og segir í ljóðinu. Töfrar og dulúð sagna og ljóða Gyrðis felast ekki síst í þessu og því að höfundur eftirlætur okkur lesendum alla túlkun. “ (Úr umsögn Halldórs Guðmundssonar)

Bókin fæst í öllum helstu bókabúðum en einnig er hægt panta eintök beint frá Dimmu!

TÍMASKJÓL tilnefnd til Íslensku þýðingarverðlaunanna

Þessi einstaka bók eftir búlgarska höfundinn Georgi Gospodinov er ein af sjö verkum sem tilnefnd eru til Íslensku þýðingarverðlaunanna og þýðendurnir Veska A. Jónsdóttir og Zophonías O. Jónsson eiga sannarlega heiður skilinn fyrir sitt frábæra verk.

Í umsögn dómnefndar segir:„Það er fágætt að bækur séu þýddar úr búlgörsku á íslensku og það er sérlega mikill fengur í Tímaskjóli. Hún er óvænt saga um mann sem stofnar sérkennilegt meðferðarheimili fyrir Alzheimersjúklinga, sem vekur slíka lukku að heilbrigt fólk haldið fortíðarþrá tekur að krefjast þess að fá sömuleiðis að njóta hinna sérstöku meðferðarúrræða. Sagan nýtur sín vel í lipurri og vandaðri þýðingu Vesku og Zophoníasar sem þýða verkið milliliðalaust úr búlgörsku.“

SÍÐASTI ÚLFURINN kominn aftur!

Ungverski rithöfundurinn László Krasznahorkai hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í ár! Fyrir nokkrum árum gáfum við út bók eftir hann sem hlaut prýðilegar viðtökur, enda aðeins örfá eintök á lagernum hjá DIMMU þegar fregnir bárust um verðlaunahafann.

Nú er komin ný prentun af þessari hnitmiðuðu og einstöku frásögn sem er skráð í einni setningu og fer fram og til baka í tíma og rúmi, þannig að lesandinn verður að hafa sig allan við til að missa ekki af neinu.

Einar Már Hjartarson íslenskaði.

Ritsafn Gyrðis Elíassonar

Þrjár nýjar bækur í heildarútgáfu verka GYRÐIS ELÍASSONAR eru komnar í bókaverslanir. Ljóðasafn III (1996-2003), Smásögur I (1988-1993) og skáldsagan SORGARMARSINN.

Einstaklega falleg útgáfuröð sem hægt er að panta í áskrift og eignast á kostakjörum. Sendið okkur línu á dimma@dimma.is og fáið frekari upplýsingar!

HEILDARSAFNIÐ kemur út í áföngum á þriggja ára tímabili 2024 – 2027.

Þegar eru komin út 9 bindi!

LJÓÐASAFN III (1996-2003): Þrjár einstakar ljóðabækur sem hafa verið ófáanlegar um langt árabil: Indíánasumar, Hugarfjallið og Tvífundnaland.

SMÁSÖGUR I (1988-1993): Þrjú fyrstu smásagnasöfn höfundarins samankomin, 49 sögur alls og sumar þeirra löngu orðnar klassík í íslenskum bókmenntum. Bréfbátarigningin, Heykvísl og gúmmískór og Tregahornið.

SORGARMARSINN kom fyrst út árið 2018 er er lokabindið í sagnaþríleik sem hófst með SANDÁRBÓKINNI og var framhaldið í SUÐURGLUGGANUM, en allar fjalla sögurnar um líf og störf listamanna.

Hér segir af manni sem öðrum þræði fæst við textagerð en hallar sér þó aðallega að tónlistinni og hefur fundið sér athvarf í litlu þorpi á Austfjörðum. Táknræn og sérstæð frásögn af sköpun, orðleysi og einskonar pattstöðu í flóknu samspili lífs og listar. 

Kómeta eftir Aðalstein Emil Aðalsteinsson

Skáldsagan KÓMETA eftir Aðalstein Emil Aðalsteinsson er komin út og fæst í öllum helstu bókaverslunum landsins. Sagan gerist á umbrotatímum á 16. öld og fjallar m. a. um kraftaverk lífsins, stríðið gegn gleymskunni, leitina að ljósi í heimi þar sem dauði, illska og fáfræði ráða oft ríkjum, og hvernig sálirnar á jörðinni takast á við sviptingar og breytta heimsmynd.

Kolnismeyjamessa árið 1536. Aldrað skáld sem dvelur í íslensku klaustri finnur reifabarn við klausturhliðið, bjargar lífi þess og byrjar að rita bréf til þeirra sem dauðinn hefur tekið frá honum. Upphefst þá frásögn sem spannar breitt svið og berst frá Íslandi á tímum siðaskipta, hertöku og skefjalausrar grimmdar til logheitrar Andalúsíu og öngstræta Granadaborgar. Einnig er greint frá afstöðu fugla til dauðans, brottflutningum Mára og sorginni sem situr eins og fleinn í hjartanu.