Velkomin á sumac

Sumac er innblásinn af nostalgísku andrúmslofti borgarinnar Beirút og er staður þar sem heimamenn og gestir geta notið dýrindis matargerðar frá Mið-Austurlöndum og seiðandi Miðjarðarhafskokteila.

Gjafabréf
Sümac Matreiðslubók
Áritað eintak

Ef þú vilt gefa upplifun þá geturðu keypt hjá okkur bæði gjafabréf á Sumac og OX auk áritaðs eintaks af Sumac bókinni.

Sumac hefur verið einn vinsælasti veitingastaður landsins um árabil og nú hefur matreiðslubók staðarins litið dagsins ljós. Í bókinni er lögð áhersla á ferskt og gott hráefni sem matreitt er undir áhrifum frá Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.

Brasilískt popup með Gogga á Sumac!

27.–28. mars

Einn fremsti fagmaður barheimsins á Íslandi, Georg, kemur í heimsókn á Sumac dagana 27.–28. mars og sýnir hvað í sér býr. Hann mun bjóða upp á 4 af sínum uppáhalds kokteilum.

Þráinn og Georg sameina krafta sína í eldhúsinu og setja saman 7 rétta brasilíska veislu.