Mia Magic 5 ára, 2026
Við erum stolt af því að fagna 5 ára afmæli Mia Magic þann 1. febrúar 2026!
Þetta verður mjög skemmtilegt ár, við erum spennt að deila með ykkur allskonar nýjungum.
Í tilefni afmælisins munum við kynna fjölbreytt úrval af nýjum vörum og
nýjum bókum um vinina Míu og Nóa.
Endilega fylgdu okkur á samfélagsmiðlum.
MÍU TEYMIÐ
MÍU TEYMIÐ
Þórunn Eva G. Páldsdóttir er stofnandi Mia Magic. Þórunn Eva er einnig höfundur bókanna Mía fær Lyfjabrunn, Mía fer í Tívolí & Mía fer í blóðprufu sem yndislega Bergrún Íris Sævarsdóttir ritstýrði og myndskreytti af sinni alkunnu snilld ásamt Jóni Sverri syni Þórunnar Evu.
Blær Guðmundsdóttir sér um umbrot bókanna & Hlynur Guðlaugsson hjá prentun.is prentar bækurnar.
LESA MEIRA
HVERNIG VARÐ MÍA TIL?
HVERNIG VARÐ MÍA TIL?
Hugmyndin að bókinni Mía fær lyfjabrunn varð til þegar Þórunn Eva var að gera lokaverkefnið sitt í sjúkraliðanáminu vorið 2019. Lokaverkefnið fékk hæstu einkunn og hvatti kennari Þórunnar að láta verða að þessari bók. Það er mikil þörf fyrir bætta fræðslu í samfélaginu okkar almennt og er hún alls ekki minni innan veggja spítalans og fyrir litla fólkið okkar þar.
LESA MEIRA
SÆKJA UM MÍUBOX
SÆKJA UM MÍUBOX
Míuboxin eru ætluð langveikum börnum 0-18 ára. Einnig erum við með Míubox fyrir foreldra langveikra barna og eru þau ætluð foreldrum barna sem eru á aldrinum 0-18 ára.
SÆKJA UM
STYRKTARAÐILAR
Styrktaraðilar 2025
Míuboxin byggjast alfarið á yndislegum stykrtaraðilum sem við erum svo endalaust þakklát fyrir að hafa með okkur í liði. Gleðin í andiltum barna og foreldranna sem fá Míuboxin eru algjörlega ógleymanleg minning í hjörtum okkar sem fáum að afhenda Míuboxin.
SJÁ STYRKTARAÐILA







