Vaðölduver

Við vinnum nú af fullum krafti af því að reisa fyrsta vindorkuver landsins á hraun- og sandsléttu austan Þjórsár, sunnan við Sultartangastíflu.

Í Vaðölduver verða fluttar og reistar 28 vindmyllur. Helmingur þeirra verður gangsettur haustið 2026 og reiknað er með að þær verði allar komnar í fullan rekstur fyrir lok árs 2027.

Öflugur og eftirsóknarverður vinnustaður

Við hjá Landsvirkjun búum vel að starfsfólki og tryggjum því sveigjanleika til að ná jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið að heilsutengdum forvörnum, öryggi og vinnuvernd.

Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.