Sunnan 13-20 m/s og rigning eða skúrir, en að mestu þurrt norðaustanlands. Hægari vindur í kvöld. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast norðanlands.
Suðaustan 13-20 og rigning í nótt, fyrst suðvestantil. Heldur hægari sunnanátt með morginum og skúrir. Hiti breytist lítið.
Spá gerð 07.04.2026 04:02
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
| Stærð | Tími | Gæði | Staður |
|---|---|---|---|
| 2,7 | 05. apr. 18:17:16 | Yfirfarinn | 159,8 km S af Eldeyjarboða á Rneshr. |
| 2,3 | 06. apr. 01:22:29 | Yfirfarinn | 273,6 km NNA af Kolbeinsey |
| 2,1 | 05. apr. 23:21:37 | Yfirfarinn | 5,3 km V af Hábungu |
| 2,0 | 05. apr. 17:24:54 | Yfirfarinn | 15,4 km SSA af Skógum |
| 1,9 | 05. apr. 17:24:56 | Yfirfarinn | 2,1 km ASA af Goðabungu |
| 1,6 | 05. apr. 06:54:13 | Yfirfarinn | 11,4 km NNV af Álftavatni |
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
| Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
|---|
Í dag 6. apríl, mun skella á austan stórhríð með snjókomu og síðar rigningu með hlýindum seinnipartinn. Jörð er frosin og talsvert af snjó til fjalla sem tekur upp í þessari hláku og því getur vaxið hratt í ám og lækjum vegna leysinga. Krapaflóð og vot snjóflóð geta fallið úr giljum og hlíðar verða óstöðugar þegar leysa fer. Úrkomuákefðin verður mest á suðurlandi við jöklana. Ísstífla í Héraðsvötnum gæti losnað og valdið flóði við þjóðveginn. Ferðamenn eru hvattir til að fara með gát og fylgja ráðleggingum frá lögreglu.
Skrifað af vakthafandi sérfræðingi 06. apr. 07:50
Snjóflóðaspár birtast nú eingöngu í nýju vefumhverfi Veðurstofunnar:
Fréttir frá skriðuvakt Veðurstofunnar birtast áfram á vedur.is
Í dag, 23. mars, er alþjóðlegur dagur veðurfræðinnar. Þema ársins undirstrikar mikilvægi mælinga og vöktunar veðurs, vatns og loftslags sem grundvöll áreiðanlegra spáa og viðvarana. Veðurstofa Íslands vinnur nú að nýjum skriðuvársíðum sem bæta munu upplýsingagjöf og viðbúnað vegna skriðuhættu.
Lesa meira
Alþjóðlegur dagur vatnsins er haldinn 22. mars ár hvert. Að þessu sinni leggja Sameinuðu þjóðirnar áherslu á tengsl vatns og jafnréttis undir slagorðinu „Where water flows, equality grows“, sem má þýða „Þar sem vatn rennur, vex jafnrétti“.
Lesa meira
Á alþjóðlegum degi jökla, sem haldinn er árlega 21. mars, er ánægulegt að segja frá því að nýlega hafa verið gefin út uppfærð sprungukort sem sýna sprungusvæði á jöklum landsins. Á kortunum er jöklum skipt í þrjá flokka af sprungusvæðum.
Lesa meira
Í febrúar hófst í Malaví verkefni um eflingu veðurathugana með stuðningi Íslands. Verkefnið miðar að því að bæta veðurspár og veðurviðvaranir sem geta verndað mannslíf og lífsviðurværi.
Lesa meiraFebrúar var kaldur, hægviðrasamur og illviðri óvenju fátíð miðað við árstíma. Austlægar áttir voru ríkjandi nær allan mánuðinn og það var þurrt í öllum landshlutum, nema á Austurlandi þar sem úrkoma var í kringum meðallag. Óvenjuþurrt og sólríkt var á sunnan- og vestanverðu landinu. Snjór var tiltölulega lítill á landinu öllu og snjólaust var nær allan mánuðinn á suðvesturhluta landsins. Tiltölulega einsleitt veðurlag breyttist í lok mánaðar með úrkomu og snjó suðvestanlands og rysjóttara veðri.
Lesa meira
Einstaka sinnum þegar úrkoma fellur úr skýjum nær hún ekki til jarðar heldur gufar upp á leiðinni. Þetta fyrirbæri sést stundum vel og kallast þá úrkomuslæður. Ástæður fyrir uppgufuninni geta verið margvíslegar, t.d. getur lágt rakastig eða hærra hitastig loftsins í lægri hæðum stuðlað að uppgufun. Einnig getur rísandi loft hindrað úrkomuna í að ná til jarðar.