Charlie Chaplin

Sir Charles Spencer Chaplin, Jr, KGB, (16. apríl 1889 – 25. desember 1977), best þekktur sem Charlie Chaplin, var leikari sem fæddur var á Bretlandi. Hann var einn frægasti leikari fyrstu Hollywood-kvikmyndanna og einnig þekktur sem afbragðsgóður leikstjóri. Ein þekktasta persóna hans var „umrenningurinn“: heimilislaus maður með framkomu og mannasiði hefðarmanns, sem gengur um í kjólfatajakka, útskeifur í víðum buxum og of stórum skóm, með kúluhatt, bambusstaf og yfirvaraskegg.
Chaplin var eitt af stærstu nöfnum kvikmyndaheimsins á tímum þöglu myndanna. Auk þess að leika leikstýrði hann, skrifaði, framleiddi og fjármagnaði sínar eigin myndir. Chaplin kynntist leikhópum og leiksviði mjög ungur og snemma komu fram einstakir látbragðshæfileikar. Hann ferðaðist víða upp úr 1900 með Fred Karno-leikhópnum og 1913 gerði hann samning við Mack Sennet hjá Keystone Studios. Árið 1919 tók hann þátt í stofnun United Artists sem gaf honum fulla listræna stjórn yfir kvikmyndum sem hann gerði. Fljótt varð hann einn þekktasti skemmtikraftur heims og sá fyrsti sem sameinaði grín og drama á hvíta tjaldinu. Myndir eftir hann eru meðal annars The Kid (1921), sem var fyrsta mynd hans í fullri lengd, Gullæðið (1925), Nútíminn (1938) og Einræðisherrann (1940). Síðasta kvikmyndins em hann tók þátt í að gera var Greifynjan frá Hong Kong (1967) með Sophiu Loren og Marlon Brando í aðalhlutverkum
Chaplin skrifaði handrit, leikstýrði, framleiddi, klippti, og samdi tónlist fyrir flestar myndir sínar. Hann var með fullkomnunaráráttu og hafði fjárhagslega burði til að eyða mörgum árum í þróun og framleiðslu kvikmyndar. Myndir hans einkennast af blöndu ærsla og viðkvæmni, sem birtist í átökum flækingsins við mótlæti. Margar af myndum hans fást við tiltekin félagsleg og pólitísk viðfangsefni, og innihalda stundum vísanir í ævi Chaplins sjálfs. Hann fékk heiðursverðlaun Bandarísku kvikmyndaakademíunnar árið 1972 fyrir ómæld áhrif á kvikmyndagerð sem listform á 20. öld. Margar af myndum hans njóta enn mikillar hylli og hafa lent á listum yfir bestu kvikmyndir allra tíma.